![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2016
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki34_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2016 dagsett 18. nóvember sl. en meginvextir, áður fyrr nefndir stýrivextir lækkuðu um 0,25% hinn 14. desember sbr. tilkynningu þar um sama dag hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Grunnur dráttarvaxta er hér lán innlánsstofnana gegn veði í 7 daga, en við vaxtaákvörðunina hinn 14. desember sl. lækkuðu þessir vextir um 0,25% úr 6,00% í 5,75%,
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25% og fara úr 13,00% og verða 12,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2017.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast aftur á móti óbreyttir og verða áfram tímabilið 1. – 31. janúar 2017 sem hér segir:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,55%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,37%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2016