![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
23. desember 2016
Sérrit nr. 10: Losun fjármagnshafta
![Sérrit nr. 10 Sérrit nr. 10](/library/Skraarsafn/Serrit/Serrit_nr._10_kapa.png?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands hefur gefið út ritið Losun fjármagnshafta, sem er númer 10 í röð Sérrita bankans. Í ritinu er fjallað um fjármagnshöftin sem komið var á hér á landi í lok nóvember 2008. Rakið er hvers vegna þau voru sett á og lýst skrefunum sem tekin hafa verið til að losa þau og tengdum áhættuþáttum. Ritið er þýðing á 8. kafla Economy of Iceland 2016 sem kom út 13. október sl. Economy of Iceland er aðgengilegt á vef Seðlabankans hér:
Sjá ritið hér: Sérrit Seðlabanka Íslands nr. 10: Losun fjármagnshafta (pdf)