![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
17. febrúar 2017
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2017
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki2_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2017 dagsett 18. janúar sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 12,75% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2017.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram tímabilið 1. – 31. mars 2017 sem hér segir:
• Vextir óverðtryggðra útlána lækka og verða 6,35% (voru 6,50%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða óbreyttir 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum lækka og verða 4,23% (voru 4,33%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2017