Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2016
Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2016 og stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.
Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 44,7 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 100,7 ma.kr. fjórðunginn á undan. Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13,3 ma.kr. en þjónustujöfnuður mældist hagstæður um 43,4 ma.kr. Jöfnuður frumþáttatekna var hagstæður um 19,3 ma.kr. en rekstrarframlög óhagstæð um 4,8 ma.kr.
Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 3.837 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.811 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 26 ma.kr. eða sem nam 1,1% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 36 ma.kr. eða sem nam 1,5% af VLF, á milli ársfjórðunga. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 113 ma.kr. Skuldir lækkuðu um 113 ma.kr. en erlendar eignir breyttust ekki vegna fjármagnsviðskiptanna. Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 79 ma.kr. á ársfjórðungnum. Gengi krónunnar hækkaði gagnvart helstu gjaldmiðlum, um 5,8% miðað við gengisskráningarvog.
Hér má sjá fréttina í heild með töflum og neðanmálstilvísunum