Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2017
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 02/2017 dags 16. febrúar sl. þar sem peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda meginvöxtum, áður nefndir stýrivextir, óbreyttum við síðustu vaxtaákvörðun sína dags 15. mars sl.
Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði í 7 daga, er því áfram óbreyttur 5,75%,
Dráttarvextir haldast því óbreyttir 12,75% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2017.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2017:
• Vextir óverðtryggðra útlána 6,35%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,23%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2017