23. mars 2017
Upplýsingar um fyrirhuguð kaup Seðlabankans á aflandskrónum
Þegar tilkynnt var um samning Seðlabanka Íslands við aflandskrónueigendur 12. mars sl. var jafnframt tilkynnt að aflandskrónueigendum sem ekki hefðu gert samkomulag við bankann yrði boðið að gera sams konar samninga. Unnið er að undirbúningi viðskipta við aðra aflandskrónueigendur og verða nánari upplýsingar birtar á næstu dögum.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að frestur til að ganga að tilboði Seðlabankans telst ekki hefjast fyrr en nánari upplýsingar um fyrirkomulag viðskiptanna hafa verið birtar.