![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Seðlabankastjóri í viðtali við Bloomberg í Japan
![Már Guðmundsson Seðlabankastjóri í viðtali við Bloomberg í Japan Már Guðmundsson Seðlabankastjóri í viðtali við Bloomberg í Japan](/library/Ljosmyndir_ISL/Vidburdir_ISL/MG_Vidtal_Bloomberg_2017.png?proc=AdalmyndFrett)
Már Guðmundsson seðlabankastjóri sótti um helgina og í gær fundi seðlabankastjóra aðildarríkja Alþjóðagreiðslubankans sem venjulega eru haldnir í Basel. Að þessu sinni voru fundirnir haldnir í Tókýó í boði Seðlabanka Japans. Daginn eftir átti seðlabankastjóri ásamt Hannesi Heimissyni, sendiherra Íslands í Japan, fund með Nobuteru Ishihara, efnahagsráðherra Japans, og átti viðræður við stjórnarmenn í viðskiptaráði Japans og Íslands. Hann veitti einnig fjölmiðlum viðtöl, m.a. í beinni útsendingu á Bloomberg sjónvarpsstöðinni sem má sjá hér:
Viðtal Bloomberg við Má Guðmundsson seðlabankastjóra 9. maí 2017 (sjá forsíðumynd)
Á viðbótarmyndinni eru frá vinstri Halldór Elís Ólafsson, viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Japan, Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Nobuteru Ishihara, efnahagsmálaráðherra Japans og Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Japan.