![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
15. maí 2017
Þórunn Guðmundsdóttir kjörin formaður bankaráðs
![Þórunn Guðmundsdóttir Þórunn Guðmundsdóttir](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/Thorunn_Gudmundsdottir_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Á fyrsta fundi nýkjörins bankaráðs Seðlabanka Íslands síðastliðinn föstudag var Þórunn Guðmundsdóttir kjörin formaður. Þórunn var fyrst kjörin í bankaráðið í mars 2015 í stað Ólafar Nordal og tók Þórunn við hlutverki formanns í apríl það ár. Á fundinum á föstudag var Sveinn Agnarsson kjörinn varaformaður.
Nánari upplýsingar um stjórnsýslu bankans má finna hér: Stjórnsýsla og skipurit Seðlabanka Íslands.