17. maí 2017
Vefútsending í tilefni af vaxtaákvörðun peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála
Vefútsending í tilefni af vaxtaákvörðun peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála hófst klukkan 10:00 á vaxtaákvörðunardegi.
Vefútsendingin er aðgengileg hér.
Það voru Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabankanum og meðlimur í peningastefnunefnd, sem kynntu ákvörðum peningastefnunefndar og efni ritsins Peningamál.
Ákvörðunin sjálf var birt með frétt klukkan 8:55 og ritið Peningamál var birt á vefnum klukkan 9:00.
Sjá hér nánari upplýsingar um peningastefnunefnd.
Sjá hér nánari upplýsingar um ritið Peningamál.
Minnt er á að sem fyrr tekur Seðlabankinn ekki ábyrgð á hugsanlegum hnökrum sem kunna að verða í vefútsendingu.