Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis
Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2017 hefur verið birt á vef bankans.
Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, síðast 14. júní. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2017.
Sjá skýrsluna hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2017.
Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar eru hér.