![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
09. febrúar 2018
Ný sameiginleg viljayfirlýsing um fjármálastöðugleika á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum
![Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki-esja_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Um er að ræða samstarf um að draga úr líkum á smitáhrifum fjármálalegs óstöðugleika á milli landanna og viðhalda virku fjármálakerfi á svæðinu.
Norður- og Eystrasaltslöndin hafa sameiginlega hagsmuni á sviði fjármálastöðugleika vegna innbyrðis tengsla í fjármálakerfum landanna. Því er aukin samvinna og samræming á milli landanna mikilvæg til þess að viðhalda fjármálastöðugleika.
Alþjóðleg umgjörð um samvinnu þeirra sem standa að viljayfirlýsingunni er mikilvæg til þess að stuðla að fjármálastöðugleika á svæðinu og efla samvinnu þeirra og samræmingu eins og lýst er í yfirlýsingunni.
Viljayfirlýsingin kemur í stað yfirlýsingar frá árinu 2010. Hún er ekki lagalega bindandi.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600.
Sameiginleg viljayfirlýsing Norðurlanda og Eystrasaltslanda um samvinnu og samræmingu á sviði fjármálastöðugleika, 31. janúar 2018 (aðeins á ensku).