Viðskiptaafgangur 2,8 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi 2017 – hrein staða við útlönd jákvæð um 190 ma.kr. í lok ársins
Á fjórða ársfjórðungi 2017 var 2,8 ma.kr. afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Halli á vöruskiptajöfnuði var 40,2 ma.kr. en afgangur á þjónustujöfnuði var 53,4 ma.kr. Frumþáttatekjur voru með 5,1 ma.kr. halla og rekstrarframlög 5,3 ma.kr. halla.
Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2017 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.
Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.092 ma.kr. í lok árs 2017 en skuldir 2.902 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 190 ma.kr. eða 7,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði á síðasta fjórðungi ársins um 63 ma.kr. eða 2,5% af VLF. Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 24 ma.kr. á fjórðungnum. Skuldir lækkuðu um 110 ma.kr. og erlendar eignir um 85 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Gengis- og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um sem nam 33 ma.kr. Skýrist það aðallega af 5,3% verðhækkunum á erlendum verðbréfamörkuðum. Gengi krónunnar hækkaði um 0,5% á fjórðungnum gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog.
Sjá hér fréttina í heild með töflum
Nr. 4/2018
2. mars 2018