![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
05. apríl 2018
Vefútsending frá ársfundi Seðlabankans í dag
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki35_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Ársfundur Seðlabanka Íslands verður haldinn í dag, fimmtudaginn 5. apríl 2018. Þar verður meðal annars gerð grein fyrir ársreikningi bankans. Á fundinum flytja ávörp og ræður þau Þórunn Guðmundsdóttir, formaður bankaráðs, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Fundurinn hefst klukkan 16:00 og verður hægt að fylgjast með honum í vefútsendingu hér á vef bankans.