![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
01. júní 2018
Vextir á innstæðubréfum Seðlabanka Íslands
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki40_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Með vísan til 2. mgr. 10. gr. laga nr. 37/2016 um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum skulu vextir af innstæðubréfum, sem tilgreind eru í lögunum, endurskoðaðir af Seðlabanka Íslands á vaxtagjalddaga.
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að frá og með vaxtagjalddaga 2. júní 2018 skuli ársvextir innstæðubréfa í flokki ISIN: IS0000027068 vera óbreyttir, þ.e. 0,5%.
Vextir innstæðubréfanna eru greiddir eftir á einu sinni á ári og skulu þeir færðir á reikninga sem háðir eru sérstökum takmörkunum, sbr. 4. mgr. 10 gr. laga nr. 37/2016.
Nr. 7/2018
1. júní 2018