![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Vinna hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabankinn.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Vinna er hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið og hefur frétt þess efnis verið birt á vef forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í fréttinni kemur fram að ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hafi ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit.
Þá kemur fram í fréttinni að á vegum ráðherranefndarinnar starfi verkefnisstjórn um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit, skipuð af forsætisráðherra. Hún sé skipuð fulltrúum forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis auk tengiliða frá Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu.
Sjá hér frétt á vef stjórnarráðsins í dag, 11. október 2018: Vinna hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið