![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
24. júní 2019
Ritið Fjármálainnviðir 2019 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki3_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Ritið Fjármálainnviðir 2019 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands.
Í ritinu, sem hefst á formála seðlabankastjóra, er að þessu sinni fjallað um kerfislega mikilvæga fjármálainnviði, greiðsluflæði og sviðsmyndir áhættu, smágreiðslumiðlun, greiðsluhegðun heimila og áætlaðan kostnað samfélagsins við smágreiðslumiðlun.
Í ritinu er jafnframt fjöldi skýringarmynda og talnaefni.
Ritið hefur komið út einu sinni á ári síðan 2013, en áður var þessi umfjöllun hluti af ritinu Fjármálastöðugleiki.
Sjá hér ritið Fjármálainnviðir 2019