![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
27. ágúst 2019
Vefútsending vegna vaxtaákvörðunar og útgáfu Peningamála
![Peningastefnunefnd 2019 Peningastefnunefnd 2019](/library/Ljosmyndir_ISL/Nefndir_ISL/peningastefnunefnd_26082019.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Vefútsending vegna yfirlýsingar og vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála hefst á morgun, miðvikudaginn 28. ágúst 2019, klukkan 10:00. Þá munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu í Seðlabankanum gera grein fyrir yfirlýsingunni, ákvörðun nefndarinnar og efni Peningamála.
Vefútsendingin verður aðgengileg hér.
Vaxtaákvörðunin sjálf verður birt hér á vef Seðlabanka Íslands klukkan 8:55 í fyrramálið og ritið Peningamál verður birt á vefnum klukkan 9:00.
Sem fyrr skal tekið fram að Seðlabankinn getur ekki tekið ábyrgð á hugsanlegum hnökrum sem geta orðið á útsendingu.