![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
09. október 2019
Útgáfa og kynning á Fjármálastöðugleika í dag
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki40_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Ritið Fjármálastöðugleiki, síðara hefti á þessu ári, kom út í dag, 9. október 2019. Ritið var birt á heimasíðu Seðlabanka Íslands klukkan 10:00.
Jafnframt hófst þá kynningarfundur í Seðlabanka Íslands fyrir fulltrúa fjölmiðla, fjármálafyrirtækja, háskóla og samtaka í atvinnulífi.
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri ritaði inngang í Fjármálastöðugleika og hún ásamt Eggerti Þresti Þórarinssyni, framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, kynntu efni ritsins.