30. desember 2019
Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2019
Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2018. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2019. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2020 til næstu endurskoðunar að ári.Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á 3 ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:
Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
• Brasilíski ríal fellur út
Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
• Singapúrskur dalur bætist við
Í vöruviðskiptavogum eykst vægi norsku krónunnar og kínverska júansins töluvert milli ára auk þess sem vægi bandaríska, kanadíska og singapúrska dalsins eykst nokkuð. Á móti minnkar vægi evrunnar, tyrknesku lírunnar og sádi-arabíska ríalsins mest. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi Bandaríkjadals en mest dregur úr vægi dönsku og sænsku krónunnar auk þess sem vægi norsku krónunnar, kanadíska dalsins og sádi-arabíska ríalsins minnkar nokkuð. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Vægi Bandaríkjadals eykst mest milli ára en vægi evrunnar, tyrknesku lírunnar, sádi-arabíska ríalsins og dönsku krónunnar minnka.
Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:
Vogir 2019
Vogir 2019