![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
10. janúar 2020
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordals
![Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki-esja_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Tilgangur styrksins, sem veittur er árlega, er að styðja framtak sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.
Styrkfjárhæðin nemur fjórum milljónum króna og verður henni úthlutað í apríl eða maí 2020. Heimilt er að skipta fjárhæðinni á milli tveggja eða fleiri umsækjenda.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands eigi síðar en 13. mars 2020.
Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð eru aðgengileg hér: Menningarstyrkur og í afgreiðslu bankans á Kalkofnsvegi 1.