![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
17. febrúar 2020
ESMA auglýsir eftir fulltrúum í hagsmunahóp
![Höfðatorg Höfðatorg](/library/Ljosmyndir_ISL/Forsidur_ISL/Eftirlit2020/FME5.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) leitar að fulltrúum í Hagsmunahóp á sviði verðbréfa og markaða e. Securites and Markets Stakeholders Group (SMSG) til að gæta hags allra hagsmunaaðila á fjármálamarkaði.
Fulltrúar hagsmunaaðila sem eru virkir innan EES-svæðisins eru gjaldgengir og geta sótt um sæti í hópnum. Umsóknarfrestur er til 29. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar um verkefni og hlutverk hagsmunahópsins ásamt eyðublöðum er varða umsókn er að finna í fréttatilkynningu á vef Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar.
Gert er ráð fyrir að þeir sem valdir eru í hópinn hefji störf í júlí á þessu ári. Ráðning fulltrúa er til fjögurra ára og geta þeir setið tvö tímabil.