04. mars 2020
Uppfærð viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum
Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar 28. febrúar síðastliðinn voru samþykkt uppfærð viðmið og aðferðafræði vegna könnunar- og matsferlis hjá fjármálafyrirtækjum (SREP). Drög að hinum uppfærðu viðmiðum voru send til umsagnar 19. desember 2019 með umræðuskjali nr. 6/2019.Markmið viðmiðanna er að skilgreina og kynna aðferðafræði og framkvæmd könnunar- og matsferlis Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins).
Við uppfærslu viðmiðanna voru gerðar nauðsynlegar breytingar vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins um síðustu áramót. Þá voru gerðar minni háttar breytingar á almennum hluta þeirra. Lutu þær einkum að umfjöllun um stjórnarhætti og innra eftirlit og mat Fjármálaeftirlitsins á eiginfjárþörf vegna áhættuþátta. Í viðauka 1, sem inniheldur viðmið fyrir mat á eiginfjárþörf vegna útlána- og samþjöppunaráhættu, voru gerðar breytingar á aðferðafræði vegna útlána til byggingaframkvæmda, lántakasamþjöppunar og geirasamþjöppunar. Í viðauka 2, sem fjallar um markaðsáhættu og fastvaxtaáhættu, var bætt við umfjöllun um breytingar sem eru væntanlegar á fastvaxtaáhættuviðmiði. Umfjöllun í viðauka 3 um eiginfjárauka tekur nú mið af því að kerfisáhættuauki, eiginfjárauki fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki og sveiflujöfnunarauki verða framvegis ákveðnir með reglum Seðlabankans.