Yfirlýsing peningastefnunefndar 11. mars 2020
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,50 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2,25%.
Jafnframt hefur nefndin ákveðið að lækka meðaltalsbindiskyldu innlánsstofnana úr 1% niður í 0%. Föst bindiskylda verður áfram 1%. Lækkun meðaltalsbindiskyldunnar og breytt meðferð á föstu bindiskyldunni í lausafjárreglum munu rýmka lausafjárstöðu bankanna og auka svigrúm þeirra til að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðarbúskapnum.
Með þessum aðgerðum er slakað nokkuð á taumhaldi peningastefnunnar í ljósi versnandi efnahagshorfa í kjölfar aukinnar útbreiðslu COVID-19-veirunnar.
Peningastefnunefnd mun áfram fylgjast grannt með framvindu efnahagsmála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðarbúskapinn.
Sjá hér nánari umfjöllun í minnisblaði Seðlabankans um bindiskyldu
Frétt nr. 6/2020
11. mars 2020
Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán 4,00%
2. Lán gegn veði til 7 daga 3,00%
3. Innlán bundin í 7 daga 2,25%
4. Viðskiptareikningar 2,00%
5. Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%