![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
25. mars 2020
Ársfundur Seðlabanka Íslands í vefútsendingu
![Harpan og bygging Seðlabanka Íslands Harpan og bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabankinn_myndir_af_husi_2020-20.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Ákveðið hefur verið að ársfundur Seðlabanka Íslands, sem haldinn er í dag miðvikudaginn 25. mars, verði takmarkaður við örfáa þátttakendur. Er það í samræmi við tilmæli stjórnvalda um takmarkanir á samkomuhaldi.
Fundurinn hefst klukkan 16:00 og verður í beinni útsendingu á vef Seðlabankans.