26. mars 2020
Hollráð við val á rafrænni bankaþjónustu
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands vekur athygli neytenda á upplýsingaskjali frá Evrópska bankaeftirlitinu (EBA) í íslenskri þýðingu. Í upplýsingaskjalinu eru nokkur hollráð sem neytendur ættu að hafa í huga við val á bankaþjónustu á netinu eða í smáforritum. Upplýsingaskjalið inniheldur einkum ráð sem neytendur ættu að hafa í huga áður en þeir velja sér þjónustu eða þegar þeir gera samning um tiltekna þjónustu, svo sem:
- Að skoða vel í hverju þjónustan felst, lengd samningstímans, heildarkostnað og gjöld og skilmála um uppsögn á þjónustunni.
- Að skoða árlega hlutfallstölu kostnaðar þar sem það er mögulegt til að bera saman mismunandi kosti.
- Að fylgjast með og láta strax vita ef einhverjar grunsamlegar hreyfingar eiga sér stað á bankareikningi eða ef óviðkomandi hefur komist inn á reikninginn til að þjónustuveitandi geti samstundis gripið til viðeigandi aðgerða.
Upplýsingaskjalið má finna hér í íslenskri útgáfu og hér í upprunalegri útgáfu.