![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
27. mars 2020
Seðlabankinn minnkar framboð bundinna innlána til eins mánaðar
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabankinn_sumar.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabankinn hefur ákveðið að draga verulega úr framboði bundinna innlána til eins mánaðar en næsta útboð verður haldið 1. apríl nk. Þessi breyting kemur í kjölfar þess að aðstæður á innlendum mörkuðum hafa breyst mikið á stuttum tíma. Fyrirséð er að útgjöld ríkissjóðs muni aukast og aukin ríkisverðbréfaútgáfa verður á næstu vikum og mánuðum. Seðlabankinn mun áfram vikulega bjóða út bundin innlán til 7 daga. Seðlabankinn mun jafnframt áfram sjá til þess að hægt sé að tryggja heimildir í greiðslukerfum með bundum innlánum.
Nr. 10/2020
27. mars 2020