01. apríl 2020
Fundargerð peningastefnunefndar frá 17. mars 2020
Í samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands er hér birt nýjasta fundargerð nefndarinnar, en kveðið er á um að fundargerð skuli birt tveimur vikum eftir hverja vaxtaákvörðun. Hér er því birt fundargerð fundar peningastefnunefndar frá 17. mars 2020, en á honum ræddi nefndin efnahagsþróun, þróun á fjármálamörkuðum, ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum og kynningu þeirra ákvarðana 18. mars. Á fundinum voru jafnframt samþykktar nýjar starfsreglur nefndarinnar.Sjá hér: Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Aukafundur í mars 2020. (92. fundur). Birt 1. apríl 2020.