![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2020
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabankinn_myndir_af_husi_2020-11.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2020 dagsett 19. mars sl. þar sem að engin breyting hefur verið á meginvöxtum síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði í verðbréfum (7 daga veðlán), er því óbreyttur 2,50%.
Dráttarvextir verða því óbreyttir 9,50% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2020.
Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2020:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,04%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,40%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,69%
Tilkynning um vexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2020