![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
30. apríl 2020
Kynningarefni fyrir skólahópa
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki2_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Starfsfólk Seðlabanka Íslands hefur tekið saman kynningarefni fyrir skólahópa sem er nú aðgengilegt hér á vefnum. Efnið er einkum hugsað fyrir nemendur í framhaldsskólum. Hópar þeirra hafa komið reglubundið í heimsókn í Seðlabankann en vegna kórónuveirufaraldursins hefur ekki orðið af slíkum heimsóknum að undanförnu.
Í kynningarefninu er farið yfir markmið, starfsemi, skipulag og stjórn bankans. Í undirbúningi er meira efni af þessu tagi.
Sjá hér kynningarefnið: Seðlabanki Íslands. Kynning fyrir framhaldsskólanemendur. Vorið 2020.
Einnig er hægt að fletta í gegn um kynningarefnið hér fyrir neðan.