![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
12. júní 2020
Varaseðlabankastjóri á fundi Samiðnar
![Rannveig Sigurðardóttir Rannveig Sigurðardóttir](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinn_rannveig_portret-6.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sótti miðstjórnarfund Samiðnar – Sambands iðnfélaga fimmtudaginn 4. júní. Á fundinum fór Rannveig yfir efnahagshorfur eins og þær birtust í nýrri verðbólgu- og þjóðhagsspá Seðlabankans í maíhefti Peningamála hinn 20. maí sl. Rannveig fjallaði um hvernig horfur hefðu versnað í kjölfar útbreiðslu COVID-19-farsóttarinnar og óvissunnar fram á við. Hún ræddi einnig aðgerðir bankans síðustu mánuði og áhrif þeirra.
Hér má sjá skjal með kynningu sem Rannveig studdist við á fundinum: Erindi hjá Samiðn