![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
16. júní 2020
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2020
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sumarblom.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 05/2020 dags 20. maí sl. um dráttarvexti og vexti af peningakröfum, þar sem að engin breyting hefur verið á meginvöxtum síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru á lánum til 7 daga gegn veði, er því 1,75%.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,75% fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2020.
Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2020:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,50%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,00%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,34%