BIS stofnar nýsköpunarmiðstöð í samstarfi við Seðlabankann og fleiri norræna seðlabanka
Alþjóðagreiðslubankinn í Basel í Sviss, BIS, tilkynnti í dag um stofnun nýsköpunarmiðstöðvar í Stokkhólmi í samstarfi seðlabanka í Danmörku, á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni er ætlað að efla greiningu á fjártæknilegri nýsköpun sem er seðlabönkum mikilvæg.
Til að auka áhrif á heimsvísu hefur Alþjóðagreiðslubankinn í Basel í Sviss ákveðið að stofna fjórar nýjar nýsköpunarmiðstöðvar á næstu tveimur árum til þess að stuðla að alþjóðlegri samvinnu í nýsköpun í fjártækni meðal seðlabanka. Seðlabanki Íslands er hluthafi í Alþjóðagreiðslubankanum.
Norræn nýsköpunarmiðstöð verður þungamiðja fyrir samstarf sérfræðinga um nýsköpun, fyrir rannsóknir á straumum í þróun fjártækni sem hafa mikla þýðingu fyrir seðlabanka, og til að efla alþjóðlega samvinnu til að bæta virkni hins alþjóðlega fjármálakerfis.
Norræna nýsköpunarmiðstöðin verður staðsett í Stokkhólmi og mun stuðla að því að Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð verði í fararbroddi í rannsóknum á stafrænum lausnum og greiningu á nýsköpun í fjártækni. Að mati Alþjóðagreiðslubankans mun miðstöðin bjóða upp á sérþekkingu á mörgum sviðum fjármálalegrar nýsköpunar sem er seðlabönkum mikilvæg.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fagnar þessum áfanga í alþjóðlegu og norrænu samstarfi seðlabanka.
„Þessi áfangi er staðfesting á því mikilvæga starfi sem tekist hefur á Norðurlöndum þar sem seðlabankar hafa tekið höndum saman um að rannsaka og þróa nýjungar á þessu sviði og þeirri frumkvöðlastarfsemi sem átt hefur sér stað í fjártækni á svæðinu. Ísland hefur lengi verið framarlega á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar með virku framlagi Seðlabanka Íslands. Með aðild að norrænni nýsköpunarmiðstöð í Stokkhólmi skapast enn fleiri tækifæri fyrir sérfræðinga frá Íslandi til að miðla af þekkingu sinni og auka við hana í alþjóðlegu samstarfi og til að takast á við áhættu sem myndast getur í fjármálakerfinu og stuðla nýjungum og aukinni skilvirkni.“
Á árinu 2019 stofnaði BIS til nýsköpunarmiðstöðva í Hong Kong, Sviss og Singapúr, og er nú að auka við þessa starfsemi með fjórum nýjum stöðvum í samvinnu við seðlabanka Kanada í Toronto, Englandsbanka í Lundúnum, fyrir evrukerfið í Frankfurt og París, auk hinnar nýju miðstöðvar norrænu bankanna fjögurra í Stokkhólmi. Þar að auki mun BIS taka upp stefnumótandi samstarf við Seðlabanka Bandaríkjanna í New York.
Sjá nánar á heimasíðum BIS og norrænu seðlabankanna:
Nr. 23/2020
30. júní 2020