Tilkynning vegna kaupa Seðlabanka Íslands á skuldabréfum ríkissjóðs
Seðlabanki Íslands hóf í byrjun maí 2020 kaup skuldabréfa ríkissjóðs á eftirmarkaði í samræmi við yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans frá 23. mars 2020. Markmið kaupanna er að tryggja miðlun peningastefnunnar út vaxtarófið til að slakara taumhald peningastefnunnar skili sér með eðlilegum hætti til heimila og fyrirtækja. Í þessu samhengi er sérstaklega horft til markaðsáhrifa af fyrirsjáanlegu auknu framboði ríkisbréfa næstu misserin á miðlun peningastefnunnar.
Stefnt er að því að umfang kaupanna séu í samræmi við eðlilega virkni markaðarins. Seðlabankinn mun því miða fjárhæð, tíðni og framkvæmd kaupanna að því að tryggja skilvirkni aðgerðanna.
Samkvæmt fyrrgreindri ákvörðun peningastefnunefndar getur heildarfjárhæð skuldabréfakaupa bankans numið allt að 150 ma.kr. Framkvæmd kaupanna er með þeim hætti að Seðlabankinn tilkynnir fyrirfram um hámarks fjárhæð skuldabréfakaupa á hverjum ársfjórðungi. Fyrir annan ársfjórðung var tilkynnt að heildarkaup bankans gætu numið allt að 20 ma.kr. að kaupverði.* Heildarkaup bankans á tímabilinu nam 892,3 m.kr. að kaupverði sem skiptist þannig að keypt var í skuldabréfaflokknum RB21 fyrir 203,5 m.kr. og RB22 fyrir 688,8 m.kr.
Fyrir þriðja ársfjórðung 2020 geta heildarkaup bankans numið allt að 20 ma.kr. að kaupverði og geta þau beinst að öllum markflokkum óverðtryggðra ríkisbréfa í íslenskum krónum með gjalddaga á árunum 2021, 2022, 2025, 2028 og 2031, og nýjum markflokkum óverðtryggðra ríkisbréfa sem kunna að bætast við.
Seðlabankinn mun áfram inna kaupin af hendi með því að leggja fram tilboð í viðskiptakerfi Kauphallar Nasdaq. Einnig er mögulegt að bankinn tilkynni um kaup með útboðsfyrirkomulagi.
Tilkynnt verður um möguleg útboð með eins dags fyrirvara ásamt upplýsingum um þá flokka sem kaupin ná til og áætlaða hámarksfjárhæð kaupanna. Finna má upplýsingar um almenna útboðsskilmála fyrir möguleg útboð vegna kaupa Seðlabanka Íslands á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði hér.
Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri markaðsviðskipta í síma 569 9600.
* Með kaupverði er átt við hreint verð (e. clean price) með áföllnum verðbótum á höfuðstól, þ.e. verð með verðbótum án áfallinna vaxta.
Nr. 24/2020
30. júní 2020