![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Fundargerðir fjármálastöðugleikanefndar frá mars 2020
![Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar](/library/Ljosmyndir_ISL/Nefndir_ISL/sedlabankinn_fjarmalastoduleikanefnd_2020-1.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fundargerðir fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands frá mars 2020 hafa verið birtar. Nefndin hittist þrisvar í mánuðinum og ræddi stöðu efnahagsmála, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, stöðu og áhættu í fjármálakerfinu og í rekstri einstakra fjármálafyrirtækja og fjármálainnviða. Nefndin tók jafnframt ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans varðandi fjármálastöðugleika.
Sjá fundargerðir hér:
- Fundargerð fyrir fund fjármálastöðugleikanefndar 10. mars 2020
- Fundargerð fyrir fund fjármálastöðugleikanefndar 16. mars 2020
- Fundargerð fyrir fund fjármálastöðugleikanefndar 31. mars 2020
Meðfylgjandi mynd er af fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara hennar, Eggerti Þresti Þórarinssyni, sem er lengst til vinstri í efri röð. Nefndarmenn eru, í neðri röð frá vinstri: Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, formaður nefndarinnar, Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri, varaformaður nefndarinnar, og Unnur Gunnarsdóttir varaseðlabankastjóri. Í efri röð frá vinstri eru Eggert ritari, Tómas Brynjólfsson, embættismaður tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneyti með málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt, Bryndís Ásbjarnardóttir, Guðmundur Kr. Tómasson og Axel Hall.
Sjá hér nánari upplýsingar um nefndina.