10. júlí 2020
Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslur vátryggingastofns
Hér með tilkynnist um yfirfærslu vátryggingastofns frá Assurant Life Limited og hluta vátryggingastofns London General Life Company Limited til Assurant Europe Life Insurance N.V. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 9 . júlí 2020 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Það liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.