![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
14. júlí 2020
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur metið Salt Pay Co Ltd. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Borgun hf.
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabankinn_myndir_af_husi_2020_7.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort sá sem hyggst eignast virkan eignarhlut sé hæfur til að fara með eignarhlutinn með tilliti til heilbrigðs og trausts reksturs fjármálafyrirtækis. Matið grundvallast á viðmiðum, sem fram koma í 2. mgr. 42. gr. laga um fjármálafyrirtæki, auk þess sem stofnunin hefur hliðsjón af viðmiðunarreglum evrópsku eftirlitsstofnananna á fjármálamarkaði frá 2016.
Fjármálaeftirlitið komst einnig að þeirri niðurstöðu að félögin Salt Partners Ltd., með skráð aðsetur á Caymaneyjum, og VCK Investment Fund Ltd., með skráð aðsetur á Bahamaeyjum, og Andre Street De Aguiar og Eduardo Cunha Monnerat Solon De Pontes væru hæf til að fara með yfir 50% óbeinan virkan eignarhlut í Borgun hf. Jafnframt var það niðurstaðan að bandaríski sjóðurinn LTS Investments Fund LP. væri hæfur til að fara með allt að 33% óbeinan virkan eignarhlut í Borgun hf.
Mat Fjármálaeftirlitsins grundvallaðist á tilkynningu Salt Pay Co Ltd. og tengdra aðila, fylgiskjölum og ítarlegum upplýsingum sem stofnunin aflaði frá aðilunum. Matið byggði einnig á upplýsingum sem stofnunin aflaði frá erlendu fjármálaeftirliti.