18. ágúst 2020
Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Starr Internationl (Europe) Limited til Starr Europe Insurance Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 31. júlí 2020 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Það liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.