19. ágúst 2020
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2020
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 7/2020 dagsett 17. júlí sl. þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ekki tilkynnt neinar breytingar á meginvöxtum síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 8,75% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2020.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2020:
• Vextir óverðtryggðra útlána 3,50%
• Vextir verðtryggðra útlána 2,00%
• Vextir af skaðabótakröfum 2,34%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2020