Gagnatöflur vátryggingafélaga – annar ársfjórðungur 2020
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur birt gagnatöflur íslenskra vátryggingafélaga á samandregnu formi fyrir annan ársfjórðung 2020. Gagnatöflurnar byggja á ársfjórðungslegum gagnaskilum vátryggingafélaga á móðurfélagsgrunni. Hér er einnig samantekt um þróun helstu stærða úr rekstri skaðatryggingafélaga og líftryggingafélaga á öðrum ársfjórðungi þessa árs.