03. september 2020
Starfsleyfi Júpíters rekstrarfélags hf. sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitið) veitti Júpíter rekstrarfélagi hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða sbr. lög nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 31. ágúst sl. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Þá hefur Fjármálaeftirlitið ennfremur veitt félaginu heimild til að sinna eignastýringu, fjárfestingarráðgjöf, vörslu og umsýslu hlutdeildarskírteina eða hluta sjóða um sameiginlega fjárfestingu og móttöku og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.