14. september 2020
Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofns
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Arch Insurance (UK) Limited til Arch Insurance (EU) dac. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 11. september 2020 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.