Tilkynning vegna kaupa Seðlabanka Íslands á skuldabréfum ríkissjóðs
Seðlabanki Íslands hóf í byrjun maí 2020 kaup á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði í samræmi við yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans frá 23. mars 2020. Samkvæmt ákvörðun nefndarinnar getur heildarfjárhæð kaupanna numið allt að 150 ma.kr., en verklagið er með þeim hætti að Seðlabankinn tilkynnir fyrirfram um hámarksfjárhæð skuldabréfakaupa á hverjum ársfjórðungi.
Fyrir fjórða ársfjórðung geta heildarkaup bankans numið allt að 20 ma.kr. að kaupverði og geta þau beinst að öllum markflokkum óverðtryggðra ríkisbréfa í íslenskum krónum.
Seðlabankinn mun áfram inna kaupin af hendi með því að leggja fram tilboð í viðskiptakerfi Kauphallar Nasdaq. Einnig er mögulegt að bankinn tilkynni um kaup með útboðsfyrirkomulagi.
Tilkynnt verður um möguleg útboð með eins dags fyrirvara ásamt upplýsingum um þá flokka sem kaupin ná til og áætlaða hámarksfjárhæð kaupanna.
Finna má upplýsingar um almenna útboðsskilmála fyrir möguleg útboð vegna kaupa Seðlabanka Íslands á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði hér.
Stefnt er að því að umfang kaupanna séu í samræmi við eðlilega virkni markaðarins. Seðlabankinn mun því miða fjárhæð, tíðni og framkvæmd kaupanna að því að tryggja skilvirkni aðgerðanna.
Fyrir annan og þriðja ársfjórðung var tilkynnt að heildarkaup bankans gætu numið allt að 20 ma.kr. á hvorum fjórðungi að kaupverði.* Heildarkaup bankans á öðrum fjórðungi námu 892,3 m.kr. að kaupverði sem skiptist þannig að keypt var í skuldabréfaflokknum RB21 fyrir 203,5 m.kr. og RB22 fyrir 688,8 m.kr. Engin kaup áttu sér stað á þriðja ársfjórðungi.
Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta í síma 569 9600.
* Með kaupverði er átt við hreint verð (e. clean price) með áföllnum verðbótum á höfuðstól, þ.e. verð með verðbótum án áfallinna vaxta.
Frétt nr. 36/2020
30. september 2020