05. nóvember 2020
Nýtt þjónustuborð fyrir skilaaðila Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur tekið í notkun nýtt þjónustuborð fyrir skilaaðila sem sameinar og leysir af hólmi eldri þjónustuborð bankans og Fjármálaeftirlitsins vegna tæknimála. Netföng hins nýja þjónustuborðs eru: adstod@sedlabanki.is og support@centralbank.is.Fram til 9. nóvember verður jafnframt tekið við þjónustubeiðnum sem send eru á eldri þjónustuborðsnetföng en eftir þann tíma verða þau afvirkjuð og eingöngu tekið við aðstoðarbeiðnum í gegnum netföng hins nýja þjónustuborðs.
Eftir sem áður skal almennum erindum beint á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is.