07. desember 2020
Akta sjóðir hf. fær starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands veitti Akta sjóðum hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða sbr. lög nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóð hinn 2. desember 2020. Í leyfinu felst að félaginu er heimilt að reka sérhæfða sjóði sbr. 1. og 2. mgr. 9. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.Félagið hefur einnig starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.