![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
12. janúar 2021
Tilkynning um yfirfærslu vátryggingastofns TM hf. til TM trygginga hf.
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_vetur_1.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Eftir yfirferð á beiðninni og viðeigandi gögnum veitti Fjármálaeftirlitið hinn 9. desember 2020 leyfi fyrir yfirfærslu vátryggingastofns TM hf. til TM trygginga hf. á grundvelli 4. mgr. 34. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi. Yfirfærslan fór fram 1. janúar sl.
Réttindi og skyldur vátryggingartaka, vátryggðra og annarra samkvæmt vátryggingasamningum halda sjálfkrafa gildi sínu við yfirfærsluna, sbr. 5. mgr. 34. gr. framangreindra laga.
Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.