![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
08. febrúar 2021
Varaseðlabankastjóri með erindi hjá Alþýðusambandinu
![Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/Rannveig%20Sigur%c3%b0ard%c3%b3ttir.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti í dag, mánudaginn 8. janúar, erindi um stöðu efnahagsmála hjá Efnahags- og skattanefnd Alþýðusambands Íslands. Kynning Rannveigar bar yfirskriftina Það er ljós við enda ganganna – En hversu hratt komumst við á leiðarenda? Kynningin fjallaði um efnahagshorfur og aðgerðir Seðlabanka Íslands í ljósi COVID-19 farsóttarinnar.
Hér má finna kynningarglærur sem Rannveig studdist við á fundinum: Það er ljós við enda ganganna – En hversu hratt komumst við á leiðarenda? – Kynning Rannveigar Sigurðardóttur á fundi Efnahags- og skattanefndar ASÍ 8. febrúar 2021.