![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
09. febrúar 2021
Aðalhagfræðingur Seðlabankans kynnir efni Peningamála
![Þórarinn G. Pétursson Þórarinn G. Pétursson](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinn_thorarinn-6.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, hefur á síðustu dögum kynnt efni nýútgefinna Peningamála á fundum í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Arion banka. Í kynningunum greindi hann meðal annars frá horfum í efnahagsmálum og nýrri verðbólguspá.
Kynningarefni sem Þórarinn studdist við má finna hér: Peningamál 2021/1 - Kynning Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands.
Ritið Peningamál má nálgast hér: Peningamál 2021/1.