Samfélagsmiðlar og viðskipti með hlutabréf
Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) hefur sent frá sér yfirlýsingu um samfélagsmiðla og viðskipti með hlutabréf. Eitt af markmiðum ESMA á sviði fjárfestaverndar er að standa vörð um almenna fjárfesta, en þátttaka þeirra er lykilþáttur í þróun fjármagnsmarkaða.
Í yfirlýsingunni er almennum fjárfestum bent á áhættu tengda því að byggja fjárfestingarákvarðanir einungis á skoðanaskiptum, óformlegum ráðleggingum og upplýsingum um fyrirhuguð viðskipti annarra á samfélagsmiðlum og viðskiptavettvöngum á netinu sem ekki eru undir eftirliti eftirlitsstjórnvalda.
Nýverið hafa orðið miklar sveiflur í verði tiltekinna bandarískra hlutabréfa sem rekja má til miðlunar upplýsinga á samfélagsmiðlum. Þrátt fyrir að reglur á bandarískum verðbréfamarkaði og innviðir hans séu frábrugðnir því sem þekkist á EES-svæðinu, er ekki útilokað að þar geti svipaðir atburðir átt sér stað.
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
- Að fjárfestar reiði sig á áreiðanlegar upplýsingar við fjárfestingarákvarðanir
- Aukna áhættu á að tapa fjárfestingu vegna mikilla verðsveiflna
- Hættuna á því að brjóta gegn ákvæðum laga um markaðsmisnotkun
Hér má sjá yfirlýsingu ESMA á vef stofnunarinnar.