Regluleg gjaldeyrissala Seðlabanka Íslands
Frá og með mánudeginum 1. mars nk. og til mánaðarloka mun Seðlabanki Íslands selja viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði 3 m. evra hvern viðskiptadag, samtals 69 m. evra. Viðskiptin munu fara fram fljótlega eftir opnun markaðarins og eigi síðar en kl. 10 árdegis. Viðskiptin eru í samræmi við yfirlýsingu nr. 30/2020 sem birt var 9. september 2020.
Seðlabankinn hóf reglulega sölu á gjaldeyri til viðskiptavaka 14. september 2020 og er markmiðið að auka dýpt gjaldeyrismarkaðarins og bæta verðmyndun. Samtals seldi bankinn 60 m. evra (9,3 ma.kr.) með reglubundnum hætti í febrúar. Frá 14. september hefur bankinn selt samtals 351 m. evra (55,7 ma.kr.) í reglulegum viðskiptum.
Bankinn mun í lok hvers mánaðar tilkynna um fjárhæð og ætlaða viðskiptadaga fyrir sölu gjaldeyris í mánuðinum sem í hönd fer og mun fjárhæðin taka mið af aðstæðum á markaði. Miðað verður að því að umfang gjaldeyrissölunnar sé í samræmi við eðlilega virkni markaðarins. Seðlabankinn áskilur sér því fullan sveigjanleika til að aðlaga fjárhæð, tíðni og framkvæmd sölunnar til að tryggja skilvirkni aðgerðarinnar.
Gjaldeyrissala þessi hefur ekki áhrif á yfirlýsta stefnu bankans um að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur tilefni til.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í síma 569 – 9600.
Sjá hér frétt bankans um efnið frá 9. september 2020: Reglubundin gjaldeyrissala Seðlabanka Íslands.
Frétt nr. 6/2021
26. febrúar 2021