![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
26. maí 2021
Nýtt gagnaskilakerfi Seðlabanka Íslands tekið í notkun
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_8.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Kynning á gagnaskilakerfinu verður haldin fyrir skilaaðila í dag. Að henni lokinni verða upptaka og glærur af fundinum gerðar aðgengilegar á þjónustuvef SÍ. Þar verður einnig hlekkur á nýja gagnaskilakerfið.
Tæknilegar fyrirspurnir og beiðnir um aðstoð í tengslum við hið nýja fyrirkomulag er unnt að senda á netfangið adstod@sedlabanki.is. Öðrum fyrirspurnum skal beint til tengiliða skilaaðila innan Seðlabankans.